Frostafold 6, 112 Reykjavík (Grafarvogur) Tilboð
Fjölbýli
3 herbergi
89 m2
Tilboð
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1987
  • Brunabótamat 43.250.000
  • Fasteignamat 60.550.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérmerktu bílastæði í Grafarvogi

Frostafold – 1. hæð – lyftuhús
Við kynnum rúmgóða og bjarta 3ja herbergja íbúð á vinsælum stað í Grafarvogi. Eignin er skráð samtals 89,9 fm (að auki fylgir sérgeymsla í sameign sem er ekki talin með í fermetratölu íbúðarinnar).

Fyrir nánari upplýsingar:
Tinna Bryde A.Lgf í síma 660-5532 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa og sjónvarpshol: Parket á gólfi með góðu plássi fyrir fatahengi. 
Stofa: Björt og rúmgóð með parketi á gólfi og útgengi út á svalir sem snúa að fallegu opnu svæði.
Eldhús: Snyrtileg innrétting, ofn í vinnuhæð, helluborð, gufugleypir, tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Með góðum skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf, með sturtu.
Þvottahús: Inn af eldhúsi, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Endurbætur:
2006 - innrétting á baðherbergi og gólfflísar
2007 - eldhúsinnrétting, gólfflísar, ofn og vifta
2013 - skipt um parket á alrými
2017 - helluborð í eldhúsi
2018 - þvottahúsgólf málað og skápur settur upp
2019 - parket í svefnherbergjum, skápur í stærra herbergi
2020 - salerni, sturta, handklæðaofn og veggflísar á baði ásamt veggflísum í eldhúsi
2022 - skápur í minna herbergi
2025 - tréverk á gluggum málað að innanverðu og skipt um opnanleg fög

Annað:
Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni.
Sérgeymsla í kjallara hússins.
Sameiginleg vagna- og hjólageymsla í kjallara.
Húsið er með lyftu.

Staðsetning:
Frostafold stendur í rólegu og barnvænu hverfi í Grafarvogi, stutt í leikskóla, skóla, verslun og almenningssamgöngur. Frábær staðsetning fyrir fjölskyldufólk eða þá sem vilja rólegt umhverfi en samt stutt í alla helstu þjónustu.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.