Dvergabakki 36, 109 Reykjavík 57.600.000 Kr.
Fjölbýli
3 herbergi
87 m2
57.600.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 1968
  • Brunabótamat 43.800.000
  • Fasteignamat 51.600.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Pálsson fasteignasala og Edwin Árnason lgf,  kynna til sölu.

Bjarta og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu fjölbýli við Dvergabakka 36.  Íbúðin er skráð 87,6 m² og þar af 14,8 m² geymsla í sameign.

* Íbúðin er tóm og laus til afhendingar við kaupsamning.
* Góðar svalir í suðvestur
* Göngufæri í Leikskóla og grunnskóla
* Gott viðhald á heildareigninni
* Góð staðsetning


Nánari upplýsingar veitir:
Edwin Árnason, Lgf. í síma: 893-2121 eða [email protected]


Nánari lýsing.
Íbúðin samanstendur af alrými með forstofu, stofu, borðstofu og eldhúsi, baðherbergi, tveimur herbergjum, svölum og sameignilegu þvottahúsi og geymslu í sameign.
Gólfefni:  Samstætt parket er á íbúðinni fyrir utan votrými

Alrými: Komið er inn í alrými þar er forstofa, stofa, borðstofa og eldhús.
Stofa: Rúmgóð og björt stofa, útgengi út á svalir frá stofu.
Eldhús: Falleg innrétting með hvítar flísar á milli efri og neðri skápa, gott skápapláss og borðkrókur.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum
Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskáp.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvítar innréttingar, salerni og bað með sturtu.
Svalir: Suðvestur svalir, snúa að sameiginlegum garði. Útgengt frá stofu.
Geymsla: 14,8 m² geymsla í sameign fylgir eigninni.
Þvottahús: Sameiginlegt þvottahús er í sameign.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er í sameign.
Stór garður, gróinn og vel hirtur og með leiktækjum á milli húsanna er sameiginlegur og snýr í suður.
Þetta er rólegt og barnvænt umhverfi með grunnskóla og leikskóla í umþb 5.mínútna göngufæri, stutt er í Mjóddina þar sem eru verslanir og ýmis þjónusta.

Viðhald seinustu ára.
2012: Múrviðgerðir gerðar á blokkinni  og hún máluð. 
2022: Ytra byrði, gluggar, múr og málað eftir þörfum.


******palssonfasteignasala.is*****
*****verdmat.is****
*****www.eignavakt.is*****


Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Pálsson Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.  
 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi sjá heimasíðu viðkomandi lánastofnunar..
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 76.880 kr. m.vsk.

 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.