Heiðnaberg 16, 111 Reykjavík (Efra Breiðholt) 87.900.000 Kr.
Raðhús
4 herbergi
140 m2
87.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1981
  • Brunabótamat 69.550.000
  • Fasteignamat 80.400.000
Opið hús: 16. júní 2025 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Heiðnaberg 16, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 03 01 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 16. júní 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg fjögurra herbergja sérhæð/raðhús með bílskúr og sólskála í rólegri botnlangagötu

-  Vel skipulögð eign með þremur svefnherbergjum
-  Endurnýjað eldhús 
-  Sólskáli (ca. 15 fermetrar, ekki í fermetratölu) með útgengi út í garð


Nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde, A.lgf. | 660-5532 | [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða [email protected]

www.verdmat.is
www.eignavakt.is 

Við kynnum til sölu sjarmerandi og fjölskylduvæna eign í grónu og vinsælu hverfi Efra-Breiðholts
Um er að ræða 140,4 fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit að framan. Eignin nýtist eins og endaraðhús og stendur innst í rólegri botnlangagötu við Heiðnaberg. Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk sem vill búa í rólegu umhverfi með góðu aðgengi að leiksvæðum, skóla og náttúru.

Fasteignamat 2026 verður 87.500.000 kr

Nánari lýsing á eigninni:
Forstofa: Flísalögð með fatahengi.  
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með parketi. 
Baðherbergi: Flísalagt með glugga, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Möguleiki á að loka af þvottahús.
Eldhús: Með góðri innréttingu, quartz borðplötu og vel búið tækjum. Innbyggð uppþvottavél, ísskáp í innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggður örbylgjuofn og span helluborð. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Með parketi á gólfi og útgengi í sólskála. 
Sólskáli: Góður og upphitaður ca. 15 fermetra sólskáli sem stækkar eignina töluvert með bárujárnsþaki og útgengi í garð. Athuga að stærð skálans er ekki í fermetratölu eignarinnar. 
Geymsluloft: Gott rými yfir hluta íbúðar.
Bílskúr: 25,2 fm bílskúr með sjálfvirkum hurðaopnara, hita, vatni og rafmagnshleðslustöð. 

Endurbætur og viðhald:
Yfirstandandi múr- og sprunguviðgerðir eru á kostnað seljanda. 
Skipt um alla glugga nema í sólskála (2023–2025)
Nýtt paket á gólfi í eldhúsi, stofu og herbergjum (2022) 
Eldhús endurnýjað (2022)
Rafmagn endurnýjað, ný rafmagnstafla og nýjir tenglar (2020)
Þak endurnýjað (2019)

Umhverfi og staðsetning 
Eignin stendur í friðsælu og fjölskylduvænu hverfi í Efra-Breiðholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði. Frábær tenging við stofnbrautir og stutt í almenningssamgöngur.
Heiðnaberg liggur í nálægð við Elliðaárdal og önnur vinsæl útivistarsvæði þar sem náttúran og borgin mætast á fallegan hátt. Hér nýtur fjölskyldan ró, nálægðar við alla helstu þjónustu og skjólsælt samfélag í grónu hverfi.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.