Hafnarbraut 15, 200 Kópavogur 76.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
3 herbergi
178 m2
76.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2019
  • Brunabótamat 110.310.000
  • Fasteignamat 142.200.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Björt og falleg 3ja herbergja íbúð með suðursvölum og bílastæði í bílageymslu

-  Suðursvalir út í skjólgóðan, afgirtan garð
-  Sér bílastæði í bílageymslu með hleðslustöð
-  Frábær staðsetning með BRIKK bakarí og veitingastað í sama húsi


Við kynnum til sölu fallega og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á annari hæð í glæsilegu húsi við Hafnarbraut á Kársnesinu. Íbúðin er björt og með gluggum til tveggja átta. Suðursvalir snúa út í lokaðan garð sem nýtist bæði til útivistar og samveru. Eigninni fylgir bílastæði í bílakjallara með hleðslustöð.

Nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde, A.lgf. | 660-5532 | [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða [email protected]

Umsögn seljanda
"Við höfum átt yndisleg fimm ár hér á Hafnarbraut og það er með smá söknuði að við setjum heimilið okkar á sölu. Við erum fjölskylda með tvö börn – 5 ára og 7 mánaða – og þessi staður hefur reynst okkur ótrúlega vel.
Strákurinn okkar hefur eignast góða vini hér í húsinu og leiksvæðið í afgirtum garðinum hefur verið mjög vinsæll. Það er eitthvað sérstaklega gott við að vita að börnin geti hlaupið út og leikið sér í öruggu og skjólgóðu umhverfi – án þess að maður þurfi að hafa áhyggjur.
Við höfum líka notið þjónustunnar í húsinu til hins ítrasta – hvort sem það er nýbakað brauð og kanilsnúðar í Brikk á morgnana eða kvöldverður á Brasserí Kársnes. Það er mikill lúxus að hafa þetta allt við hendina.
Nú höfum við ákveðið að stækka við okkur og því er íbúðin okkar komin á sölu. Við vonum innilega að næstu íbúar njóti hennar jafn mikið og við höfum gert."


Nánari lýsing á íbúðinni:
Forstofa: Opin með fataskápum og parketi
Baðherbergi: Flísalagt með góðri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, rúmgóð walk-in sturta og gólfhiti
Eldhús: Opið inn í stofu með dökkri og hvítri innréttingu frá HTH, spanhelluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. 
Stofa: Björt og rúmgóð með útgengi á suðursvalir sem liggja að afgirtum garði. 
Hjónaherbergi: Rúmgott með góðum fataskápum
Barnaherbergi: Með parketi og fataskáp
Geymsla: Sér geymsla í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu

Aðstaða og umhverfi:
Húsið er í hjarta Kársness – þar sem náttúra og þjónusta mætast. Í sama húsi er veitingastaðurinn Brasserí Kársnes, sem hefur notið mikilla vinsælda, og BRIKK bakarí þar sem hægt er að næla sér í nýbakað bakkelsi á hverjum degi. Gönguleiðir meðfram sjónum, smábátahöfn, leikskólar, grunnskólar og íþróttaaðstaða eru öll í næsta nágrenni.
Eignin hentar jafnt einstaklingum, pörum og litlum fjölskyldum sem vilja stílhreint og vel staðsett heimili.

Nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde, A.lgf. | 660-5532 | [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða [email protected]

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.