Ártún 19, 806 Selfoss 59.500.000 Kr.
Sumarhús
4 herbergi
79 m2
59.500.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 3
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2025
  • Brunabótamat 0
  • Fasteignamat 2.770.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Fjölskylduvæn náttúruparadís – heilsárshús í Reykjaskógi, Bláskógabyggð
Við kynnum til sölu glæsilegt og fullbúið sumarhús við Ártún 19 í Reykjaskógi, aðeins rúman klukkutíma frá Reykjavík og 14 mínútna akstur frá Laugarvatni.
Þetta er draumaathvarf fjölskyldunnar í hjarta Gullna hringsins, þar sem náttúran er í fyrirrúmi og öll aðstaða fyrsta flokks.

-  Fullbúið sumarhús á steyptum sökkli með viðarpalli
-  Þrjú svefnherbergi – rúmgóð fjölskyldueign
-  Vandaðar innréttingar, tækjabúnaður og húsgögn fylgja
-  Einstök staðsetning með þjónustu og afþreyingu í næsta nágrenni

Fyrir nánari upplýsingar:
Tinna Bryde, 
löggildur fasteignasali í síma 660-5532 eða [email protected]  

Lýsing eignar
Stærð: 79,7 fm á einni hæð og pallur 15,9 fm. 
Húsið er íslensk hönnun, teiknað af Ívari Haukssyni og framleitt af Nordroof Ísland og uppfyllir alla íslenska gæða staðla.
Húsið er í byggingu og áætlaður afhendingartími er í september 2025. Húsið er afhent fullbúið með húsgögnum. 

Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Þrjú svefnherbergi, öll með fataskápum og parketi á gólfi. 
Stofa: Björt og opin stofa með parketi á gólfi og útgengi út á viðarpall. 
Eldhús: Hvít fulninga innrétting (RAL 9010) með ljósri avant quartz borðplötu. Vönduð Electrolux tæki fylgja: ísskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, bakaraofn og helluborð með innbyggðri viftu (Elica). Parket á gólfi.  
Baðherbergi: Flísalagt gólf og fibo plötur á veggjum. Vönduð innrétting, upphengt klósett, walk-in sturta með steingólfi og glerþili. Útgengt út á pall frá baðherbergi. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. 

Aðstaða og búnaður
Gólfhiti í öllum rýmum (gólfhitalagnir tengdar við tengigrind)
Gluggar og útihurðir úr ál-tré (RAL 7016)
Bræddur tvöfaldur þakpappi og þakrennur
Lagnaleið fyrir rafmagnshleðslu á bílastæði (hleðslustöð fylgir ekki)
Lagnaleið fyrir heitan pott við húsið
Steyptur sökkull og grófjafnað bílaplan

Lóðin 
Hægt er að kaupa eða leigja lóðina.
Nánari upplýsingar veitir Tinna Bryde í síma 660-5532 eða á [email protected]

Nágrenni og þjónusta – í hjarta Gullna hringsins
Reykjaskógur er fullkominn fyrir þá sem vilja kyrrðina og náttúruna, en jafnframt stutt í þjónustu, verslanir og afþreyingu.
Matvöruverslanir: Laugarvatn, Reykholt, Flúðir
Veitingastaðir og kaffihús: Efstidalur 2, Friðheimar, Laugarás og fleiri
Göngu- og hjólaleiðir: Brúará, Brúarfoss, Kóngsvegur
Afþreying: Laugarvatn Fontana, sundlaugar í nágrannabæjum, hestaleiga, veiði, golfvellir
Svæðisaðstaða: Leiksvæði með sparkvelli, frisbígolf, minigolf og barnaleiksvæði

Þetta er fjölskylduvæn náttúruparadís aðeins rúman klukkutíma frá Reykjavík og 14 mínútna akstur frá Laugarvatni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.