Hraungata 13, 210 Garðabær 122.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herbergi
155 m2
122.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 2
  • Inngangur Sameig.
  • Byggingaár 2018
  • Brunabótamat 101.170.000
  • Fasteignamat 111.700.000

Palsson Fasteignasala kynnir:

Falleg, vönduð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð á 3. hæð í góðu lyftuhúsi á vinsælum stað í Urriðaholtinu. Glæsilegt útsýni og í nálægð við leikskóla, skóla, verslun og náttúruparadísina Heiðmörk.

** 4 svefnherbergi
** Stæði í bílskýli
** Glæsilegt útsýni
** Vandaðar innréttingar og gólfefni 


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 155,4m2 þar af geymslur 8,6m2 og 3,9m2.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, 4 svefnherbergi, fataherbergi, 2 baðherbergi, 2 geymslur og stæði í bílageymslu.

Nánari lýsing 
Anddyri er með góðum skáp. Parket á gólfi.
Baðherbergi/þvottahús er með dökkri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni og "walk-in" sturtu. Innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og gott skápapláss. Flísar á gólfi og hluta veggja.  
Svefnherbergi I er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III hefur verið útbúið sem svefnherbergi þar sem sjónvarpsrými var á upprunalegu teikningunni. Hægt er að opna það aftur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi IV er mjög rúmgott hjónaherbergi með innbyggðum hillum. Inn af herberginu er rúmgott fataherbergi með góðum hirslum og sérbaðherbergi með innréttingu, handlaug, vegghengdu salerni og "walk-in" sturtu.
Eldhús er með vandaðri ítalskri innréttingu frá Parka. Borðplata úr ljósum Quartz-steini. Vönduð eldhústæki. Bakaraofn í vinnuhæð og stór eyja með spanhelluborði og háfi. Parket á gólfi.  
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð. Gengið út á rúmgóðar suðursvalir með óheftu útsýni.  Parket á gólfi.
Tvær geymslur fylgja íbúðinni. Annars vegar forstofugeymsla sem er úti á stigagangi og góð geymsla í sameign.  
Sameiginleg hjóla-  og vagnageymsla er á 1. hæð í sameign.
Sérstæði í bílskýli.

Hraungata 13, íbúð merkt 0303, er afar falleg eign sem vandað hefur verið til verka í vali á innréttingum og efnum. Frábær staðsetning í Urriðaholtinu. Sjón er sögu ríkari.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.