Skerjabraut 3, 170 Seltjarnarnes 89.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herbergi
92 m2
89.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 2015
  • Brunabótamat 59.750.000
  • Fasteignamat 73.500.000
Opið hús: 26. ágúst 2025 kl. 12:15 til 12:45.

Opið hús: Skerjabraut 3, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 02 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. ágúst 2025 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.

Palsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð og smekkleg 2–3 herbergja endaíbúð á efstu hæð við Skerjabraut 3, Seltjarnarnesi
Við kynnum til sölu bjarta og rúmgóða íbúð á annarri hæð (efstu hæð) í húsi byggðu árið 2015. Íbúðin er skráð sem þriggja herbergja íbúð en er í dag nýtt sem tveggja herbergja, þar sem stofa og eldhús hafa verið stækkuð. Auðvelt er að bæta við auka svefnherbergi samkvæmt teikningu.

-  Endaíbúð á efstu hæð 
-  Vandaðar innréttingar frá GKS og steinborðplötur í eldhúsi og baði
-  Gegnheil furugólf og björt rými 
-  Góð staðsetning í rólegu umhverfi


Allar nánari upplýsingar veita:
Tinna Bryde Lgf –  í síma 660-5532 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf –  í síma 775-4000 eða [email protected]

Nánari lýsing:
Inngangur: Sameiginlegur inngangur og sérinngangur af svölum.
Forstofa: Með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum. Innbyggð blöndunartæki í sturtu, sturtugler, handklæðaofn og upphengt salerni. Hvít GKS innrétting með steinborðplötu og undirlímda handlaug, speglaskápur með lýsingu. Gert ráð fyrir þvottavél/þurrkara, auk sameiginlegs þvottahúss í kjallara.
Svefnherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með svörtum fataskápum.
Stofa og eldhús: Opin og björt rými með góðum gluggum. Eldhúsinnrétting frá GKS, hvít og svört lökkuð, steinborðplata og flísar á milli skápa. Eldhústæki frá AEG í stáláferð. Útgengt er á svalir úr stofu.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign í kjallara.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús.
Gólfefni: Gegnheil furuborð á gólfum.

Staðsetning:
Skerjabraut 3 er á rólegum og fjölskylduvænum stað á Seltjarnarnesi, þar sem bílaumferð er í lágmarki. Í nágrenninu er fjölbreytt þjónusta, skólar, leikskólar og stutt í fallegar göngu- og útivistarleiðir. 


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.