Barðavogur 22, 104 Reykjavík (Vogar) 64.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Þríbýli
3 herbergi
78 m2
64.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 2
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1952
  • Brunabótamat 37.800.000
  • Fasteignamat 55.400.000
Opið hús: 26. ágúst 2025 kl. 18:00 til 18:30.

Opið hús: Barðavogur 22, 104 Reykjavík. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 26. ágúst 2025 milli kl. 18:00 og kl. 18:30.

Palsson Fasteignasala kynnir:

-Sérinngangur og sérbílastæði
-Baðherbergi og eldhús nýlega tekið í gegn
-Nýlegir gluggar og gler
-Fiskibeinaparket 


Íbúðin er á jarðhæð/kjallara í huggulegu þríbýli og er 78,8 fm samkvæmt Þjóðskrá, þar af er 2,4 fm sérgeymsla.
Gasalega lekkert gegnheilt fiskibeina viðarparket á gólfum í alrými og herbergjum.
Baðherbergi og forstofa flísalögð.
Sameiginlegt þvottahús er í þríbýlinu.

Nánari upplýsingar veita:
Ævar Jóhanns Lgf. í síma 861-8827 / [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í síma nr775-4000 / [email protected]

Nánar um eignina:
Gengið er inn í flísalagða forstofu.
Inn af henni er rúmgott parketlagt hol.
Eldhús er með parketi á gólfi, dökkri innréttingu og eyju. Flísar á milli efri og neðri skápa, innbyggður ísskápur, uppþvottavél og nýleg eldhústæki.
Svefnherbergi 1 er mjög rúmgott og bjart með parketi á gólfi og stórum fataskáp.
Svefnherbergi 2 er einnig rúmgott og með parketi á gólfi.
Stofan er björt með glugga á tvo vegu og parketi á gólfi. Rúmgóð og rúmar bæði sjónvarpsrými og borðstofu.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtu, handklæðaofni og fallegri innréttingu.
Inn af forstofu er aðgengi að sameiginlegu þvottahúsi og sérgeymslu.

Eignin er vel staðsett í hinu eftirsótta Vogahverfi þar sem stutt er í fallega náttúru, gönguleiðir, leikskóla, grunnskóla og alla helstu þjónustu.

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.