Lyngheiði 17, 810 Hveragerði 84.900.000 Kr.
Einbýli
5 herbergi
146 m2
84.900.000
  • Stofur 1
  • Svefnherbergi 4
  • Baðherbergi 1
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1973
  • Brunabótamat 69.550.000
  • Fasteignamat 70.800.000

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og bjart 5 herbergja einbýlishús með stórum palli og heitum potti í Hveragerði.
  • Róleg og eftirsótt staðsetning í fjölskylduvænu hverfi
  • 5 herbergja einbýlishús
  • Stór trépallur með heitum potti
  • Bílskýli og vinnustofa/geymsluskúr
Nánari upplýsingar veita:
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða [email protected] eða
Andrea Ósk Harradóttir - aðstoðarmaður fasteignasala í síma 785-6698 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar er 146,6 m² samkv. HMS.

Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, vinnustofu/geymsluskúr og bílskýli.
Forstofa - Forstofa er flísalögð.
Forstofuherbergi - Rúmgott og bjart forstofuherbergi með parketi á gólfi.
Hol / gangur - Rúmgottt hol/gangur, flísalagt, með fataskáp og aðgengi að baðherbergi og svefnherbergjum.
Baðherbergi - Flísalagt baðherbergi með handlaug, salerni, handklæðaofni á vegg og sturtuaðstöðu í baðkari. Baðherbergi var endurnýjað 2020. Gluggi endurnýjaður ásamt lögnum undir baðkari. Flísar teknar af veggjum, timbur og einangrun endurnýjuð og settar voru Fibo plötur ásamt nýjum blöndunartækjum. Vínilparket lagt á gólf.
Svefnherbergi - Við ganginn eru þrjú svefnherbergi. Öll björt og rúmgóð en hjónaherbergið er stærst og með fataskáp.
Eldhús - Eldhús með IKEA-innréttingu, eldavél og flísum á milli skápa og á gólfi. Úr eldhúsi er gengt í búr/þvottahús og dýr út þaðan.
Stofa / borðstofa - Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á stóran pall.
Að utan - Húsið er klætt standandi viðarklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr tré og járn er á þaki. Við annan enda hússins er vinnustofa/geymsluskúr og bílskýli í framhaldi af því.
Pallur - Pallur sunnan við húsið með skjólveggjum.
Garður - Garður með töluverðum trjágróðri. Innkeyrsla er malbikuð. Í garðinum er einnig lítið skýli og aðstaða sem eigendur hafa nýtt fyrir hænur.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.