Hverfisgata 50, 220 Hafnarfjörður 149.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
7 herbergi
223 m2
149.900.000
  • Stofur 2
  • Svefnherbergi 5
  • Baðherbergi 3
  • Inngangur Sér
  • Byggingaár 1926
  • Brunabótamat 71.350.000
  • Fasteignamat 90.850.000
Opið hús: 05. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30.

Opið hús: Hverfisgata 50, 220 Hafnarfjörður. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 5. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Pálsson kynnir :
Glæsilegt einbýlishús í hjarta Hafnarfjarðar. 
Virkilega fallegt og einstaklega sjarmerandi einbýlishús á frábærum stað í Hafnarfirði.
Húsið er á 3 hæðum með miklum möguleikum í útleigu, fallegur stór suðurpallur og 
Örstutt frá miðbæ Hafnarfjarðar með iðandi mannlífi og veitingastöðum. Stutt í skóla, leikskóla og framhaldsskóla.

-  Einstök eign í hjarta Hafnarfjarðar
-  Aukaíbúð á jarðhæð – frábær til útleigu
-  Vel við haldið og mikið endurnýjað


Nánari upplýsingar veitir: Inga Reynis í síma 820-1903 eða á [email protected]

Eignin er skráð með tveim fasteignanúmerum en seld í einu lagi.
Eign 172,4 og Eign 50,5 
Heildar fermetrafjöld 223 fm 
Heildar fasteignamat  fyrir 2026 er 132.700.000 mkr. 

Búið er að breyta aðeins skipulaginu á litlu íbúðinni þannig að hluti hennar nýtist með stærri eigninni til að auðvelda útgengi út í garð.
Eignaskiptasamningi hefur ekki verðið breytt í samræmi við þetta en auðvelt er að breyta aftur í fyrra horf. 


Jarðhæð – aukaíbúð:
Rúmlega 55 fm studio íbúð með sérinngangi. Alrými með stofu/borðstofu og eldhúsi og hjónarúmi, baðherbergi og góð geymsla. Parket á gólfum og flísar á baðherbergi.
Hentar vel til útleigu. Hægt er að opna á milli og tengja jarðhæð við húsið.
2. hæð 
Forstofa björt og góð forstofa með flísum á gólfi. 
Hol er bjart með útgengni út á suður svalir og parket á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu með steyptum vask, spanhelluborði, ofni og háf. Háir skápar með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa  eru rúmgóð og björt með glugga á 3 vegu og parket á gólfi.
Gengið er upp stiga á efri hæðina með kókósteppi og virkilega fallegum glugga með ártali hússins.
3, hæð
Hjónaherbergi rúmgott með útgengt á suðursvalir. Parket á gólfi.
Herbergi með skápum og  parketi á gólfi.
Herbergi með skápum og  parketi á gólfi.
Herbergi með stórum skápum og parket á gólfi.
Baðherbergi er með upphengt salerni, góðri innréttingu, baðkar og gluggi. Flísalagt í hólf og gólf,
Þvottahús er á jarðhæð með vaski í innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, ásamt glugga. Vínylflísar á gólfi.

Gengið er niður úr forstofu og þaðan niður í rými sem er nýtt sem vinnuaðstaða í dag, var áður partur af litlu íbúðinni. Þar er hurð beint út í garð.
Garðurinn er í suður og er mjög skjólgóður, stór pallur og 15 fm geymsluskúr.

.
Framkvæmdir á eigninni undanfarin ár að sögn seljenda. 
2021: Rafmagn á miðhæð hússins endurnýjað og ný rafmagnstafla.
Neysluvatn, ofnar og ofnalagnir að hluta.
Skipt um gólfefni á miðhæð og forstofan flísalögð.
Stigar teppalagðir og byggður pallur.
2023: Húsið málað að utan.
2024-2025: Þak og rennur endurnýjað. Ný útidyrahurð og eldavél í auka íbúð. Skipt um allt gólfefni á efstu hæð
og nýr ofn í herbergi uppi.
Bætt við eldhúsinnréttingu.
Skipt um teppi á stiga og annað gólfefni í kjallara.
Baðherbergi tekið í gegn, nýtt salerni, vaskur og vaskinnrétting, nýjar flísar á gólfi, baðkari og veggjum.

Þetta er virkilega falleg eign með miklum möguleikum á frábærum stað í gamla bænum í Hafnarfirði.
Möguleiki á að hafa leigutekjur af litlu íbúðinni eða nýta allt húsið sem eitt.
Hér er allt innan seilingar – verslanir, kaffihús og skólar - bæði grunnskóli (Lækjarskóli), framhaldsskóli (Flensborg) og leikskóli (Hörðuvellir). 

Nánari upplýsingar veitir Inga Reynis í síma 8201-1903 eða á netfanginu [email protected]




 

Senda fyrirspurn

Skilaboð hafa verið send.

Bóka skoðun

Skilaboð hafa verið send.

SENDA FYRIRSPURN

Skilaboð hafa verið send.

SENDA Á VIN

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.